Í grendinni veit ég um vin, sem ég á,
í víðáttu stórborgarinnar.
En dagarnir æða mér óðfluga frá
og árin án vitundarminnar.
Of yfir til vinarins aldrei ég fer
enda í kappi við tímann.
Sjálfsagt þó veit hann ég vinur hans er,
því viðtöl við áttum í símann.
En yngri vorum við vinirnir þá,
af vinnunni þreyttir nú erum.
Hégómans takmarki hugðumst við ná
og hóflausan lífróður rérum.
"Ég hringi á morgun," ég hugsaði þá,
" svo hug minn fái hann skilið",
en morgundagurinn endaði á
að ennþá jóks milli okkar bilið.
Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk,
að dáinn sé vinurinn kæri.
Ég óskaði þess, er við gröf hans ég gekk,
að í grenndinni ennþá hann væri.
Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd
gleymdu ekki, hvað sem á dynur,
að albesta sending af himnunum send
er sannur og einlægur vinur.
(Höf ókunnur, þýðing Sig. Jónsson)