Scroll down
Peningar eru nytsamlegir, en kærleikurinn, athyglin og umhyggjan sem við berum fyrir öðrum er það sem mestu skiptir.
úr "A Life for God"
Ef við erum friðlaus, er það af því að við höfum gleymt að við tilheyrum hvert öðru.
Við getum læknað líkamlega sjúkdóma með lyfjum en ekkert læknar einsemd, örvæntingu og vinleysi nema kærleikur. Margir hér í heimi deyja af því þá skortir brauð en miklu fleiri deyja úr skorti á kærleika.
Sinntu venjulegum verkum með óvenjulegri ástúð: daglegum störfum eins og að annast sjúka og heimilislausa, einmana fólk og utangarðsmenn, þvo og þrífa hjá þeim.
Við þurfum engar sprengjur, engin vopn. Kærleikurinn er vopn okkar: kærleikurinn til hinna holdsveiku, hinna öldruðu, hinna deyjandi, hinna lömuðu; til allra þeirra sem eiga engan að og engir elska.
Hvað tækir þú þér fyrir hendur ef þú vissir að þér gæti ekki mistekist?
Aðeins þeir sem þora að gera mikil mistök geta náð miklum árangri.
Stundin er alltaf rétt til að gera hið rétta.