Strákarnir geta alla tíð gengið í jakkafötum og í hæsta lagi breyta þeir svolítið skyrtutískunni eða hálsbindinu. En stelpurnar, það er alltaf verið að breyta þeim til þess að minna þær á, eða minna okkur á: Passaðu þig góða, mundu hver þú ert. Ég er mjög fyrir það að fylgja nútímanum í allri tísku. Það viljum við auðvitað og vera vel til hafðar og vel til fara. En það má ekki verða til þess að skyggja á það að við erum mjög sterkar andlegar verur, konur.

    Athugasemdir

    0

    Deila