„Rós er rós er rós" sagði Gertrud Stein.
Og við segjum: loforð er loforð er loforð!
Svik eru svik eru svik.
Mér finnst grafalvarlegt hvernig ráðamenn hafa í svörum sínum og útskýringum stöðugt afvegaleitt tungumálið, ráðist inn í samband orðs og merkingar á skítugum skónum, reynt að rjúfa og brengla samband orðs og merkingar.