Þegar óhapp einfeldnings
    auð hins ríka skerðir,
    reka hann til réttarþings
    reiðir lagaverðir.

    Siðavendni sanntrúuð
    sök í dóm lét stefna,
    vildi – til að gleðja guð -
    greypilega hefna.

    Lagastaðinn lögvís fann:
    Létt er úr máli að skera.
    Í drottins nafni að drepa hann
    dæmist rétt að vera.

    Þegar böðull hálsinn hjó,
    heigull augun þerrði,
    illgjarn glotti, heimskur hló,
    hræsni krossmark gerði.

    Ljóðið "Réttvísi"

    0

    Athugasemdir

    0

    Deila