Ég berst á fáki fráum
    fram um veg.
    Mót fjallahlíðum háum
    hleypi ég
    . Og golan kyssir kinn.
    Og á harða, harða spretti
    hendist áfram klárinn minn.

    Það er sem fjöllin fljúgi
    móti mér;
    sem kólfur loftið kljúfi
    klárinn fer,
    og lund mín er svo létt,
    eins og gæti ég gjörvalt lífið
    geysað fram í einum sprett.

    Hve fjör í æðar færist
    fáknum með!
    Hve hjartað léttar hrærist!
    Hlær við geð,
    að finna fjörtök stinn!
    Þú ert mesti gæðagammur,
    góði Léttir, klárinn minn!

    Hve hátt hann lyftir hnakka,
    hvessir brá,
    og hringar hreykinn makka.
    Horfið á!
    Sko, faxið flaxast til!
    Grundin undir syngur söngva
    slétt við Léttis hófaspil.

    En læg nú sprettinn, Léttir,
    líttu á,
    við eigum brekku eftir,
    hún er há.
    Nú ægjum við fyrst ögn
    áður söng og hófa hljóði
    förum rjúfa fjallaþögn.

    Athugasemdir

    0

    Deila