Tíminn mínar treinir ævistundir.
    Líkt sem kemba' er teygð við tein,
    treinir hann mér sérhvert mein.

    Skyldi hann eftir eiga' að hespa', spóla
    og rekja mína lífsins leið,
    láta í höföld, draga í skeið?

    Skyldi' ann eftir eiga að slíta, hnýta,
    skammel troða, skeið að slá,
    skjóta þráðum til og frá?

    Skyldi hann eftir eiga mig að þæfa,
    síðan úr mér sauma fat,
    síðast slíta á mig gat?

    Skyldi' ann eftir eiga mig að bæta?
    Það get eg ekki gizkað á,
    en gamall held eg verði þá.

    Ljóðið "Tíminn" Ljóðmæli 1944

    0

    Athugasemdir

    0

    Deila