Mér hugnast ekki lengur stórvirki og miklar ráðagerðir, stórar stofnanir og mikið veraldargengi. Ég kann æ betur við hin örsmáu, ósýnilegu, ástríku öfl, sem vinna sitt verk í samskiptum manna, skríða eins og jarðsprotar um alla ganga og skot, eða smjúga eins og vatnið, sem með tímanum vinnur bug á hörðustu minnismerkjum stoltsins.

    Athugasemdir

    0

    Deila