Engin tunga bragðast eins
    engin tunga bragðast illa
    Tungur
    hafa rætur
    stofna og greinar
    eru brögðóttar mildar slóttugar
    kímnar kátar fullar
    af munúð
    hikandi haltrandi flæðandi
    græðandi hvassar
    ögrandi
    sumar smáar
    sumar gildar
    sumar ógnandi
    sumum ógnað
    Tungu
    má beita
    og breyta
    því verðum við að kyngja
    Við fengum tungu
    kvika og viðkvæma
    hún lætur illa að stjórn
    lagar sig að hverjum munni
    hún er gjöf
    og hún er gefins
    hverjum þeim sem vill opna upp á gátt
    Lifandi tilvist
    eign einskis
    Nú rofar til
    börnin fylla litla vasa af túnfíflum
    hlaupa færandi hendi inn í hlýjan faðm
    Fíflarnir eru gulir
    himinninn er blár
    og faðmurinn er opinn faðmurinn
    á alltaf að vera opinn
    Grjót er ekki bara grjót
    og lækur ekki bara lækur
    Allt er lifandi
    opnum upp á gátt og þiggjum
    Í fjallinu vex hundasúra
    við leggjum hana á tunguna og finnum
    hvernig hún bragðast
    eins og vor eins og
    nýtt upphaf
    eins
    og rót
    sem fikrar sig
    frá einu
    til annars

    Ávarp fjallkonunnar árið 2022 flutt af Sylwia Zajkowska

    Athugasemdir

    0

    Deila