Ég finn það gegnum svefnin
    að einhver læðist inn
    með eldhúslampann sinn,
    og veit að það er konan,
    sem kyndir ofnin minn,
    sem út með ösku fer
    og eld að spónum ber
    og yljar upp hjá mér,
    læðist út úr stofunni
    og lokar á eftir sér.

    Ég veit að hún á sorgir
    en segir aldrei neitt,
    þó hún sé dauðþreitt,
    hendur hennar sótugar
    og hárið illa greitt.
    Hún fer að engu óð
    er öllum mönnum góð
    og vinnur verk sín hljóð.
    Sumir skrifa í öskuna
    öll sín bestu ljóð.

    Ég veit að þessi kona
    er vinafá og snauð
    af veraldlegum auð,
    að launin, sem hún fær,
    eru last og daglegt brauð.
    En oftast er það sá,
    sem allir kvelja og smá,
    sem mesta mildi á.
    Fáir njóta eldanna,
    sem fyrstir kveikja þá.

    Konan sem kyndir ofninn minn.

    Athugasemdir

    0

    Deila