Hvað gefur því alt þetta afl og fjör
sem óróa fyllir mitt blóð?
Þau stinga mig lengi á eftir sein ör
þín eldlegu, hvössu og stálmjúku svör,
og lif mitt er þyrst i þín ljóð.
í svip þínum lít eg sem benta boga,
und brúnunum tindrandi vafurloga;
það hrökkva' af þér neistar, sem örfa og eggja
og eldstraum um sál mina leggja.